Í lok mars var fyrsta rally hlýðni próf ársins haldið. Prófið var tvöfalt og dæmdi ég annað prófið en mætti með Vistu og Lúnu í hitt prófið. Lúna mætti í Rally 1, endaði með 91 stig og fyrsta sætið í sínum flokki. Vista mætti svo í fyrsta Rally 2 prófið sem haldið hefur verið og endaði með 97 stig og fyrsta sætið. Þær fengu því báðar einn "pinna" eftir þetta próf.
Glæsilegu hundabörnin úr fyrsta gotinu mínu áttu afmæli um síðastliðna helgi og urðu þau 6 ára gömul. Píla, Lotta, Blue, Mitch, Tess og Alba til hamingju með daginn !
0 Comments
Sögulegur og sérstaklega skemmtilegur dagur í dag hjá hundasporti á Íslandi. Fyrsta rally hlíðni prófið hjá HRFÍ var haldið í dag, tvöfalt próf, þar sem ég dæmdi fyrra prófið og mætti með alla mína hunda í seinna prófið. Blue og Lotta ásamt sínum viðhengjum mættu einnig í bæði próf og fóru heim með fínar einkunnir (Lotta með tvær gildar einkunnir og Blue með eina). Píla mætti fyrst í braut, gerði allt hrikalega hratt og ekki alltaf mjög nákvæm svo við fengum 87 stig og 9. sætið. Lúna var næst síðasti hundur í braut, gekk ansi fínt og fékk 97 stig og 5. sætið. Vista bætti smá rós í hnappagatið hjá sér, náði 100 stigum og 1. sætið og heitir því í dag RL-I OB-I OB-II DKRLCH Asasara Go Go Vista Ýmislegt og allskonar hefur verið á döfinni undanfarið hjá okkur. Ég fór með stelpurnar í æfingarpróf í Rallý hlýðni sem Voffaland hélt í byrjun desember. Þar mættum við í skemmtiflokk þar sem ég dæmdi hina tvo flokkana. Píla og Lúna náðu báðar 100 stigum en Píla var með betri tíma og fékk því 1. sætið og Lúna 2. sætið. Lotta var svo í 3 sæti með 99 stig. Vista var í 5 sæti með 90 stig. Heilsufars niðurstöður bárust fyrir Lottu fyrir nokkru síðan en hún fékk eftirfarandi einkunnir HD - A AA - Fri OCD - Free Blue og Lotta luku einnig smalaeðlisprófi í október og hafa því einnig fengið nafnbótina NHAT líkt og Vista og Píla. Mitch í Danmörku hefur einnig bætt á sig nokkrum rósum og heitir í dag DKRLCH DKRLSCH RLCHB Fly And Away Always Our Mitch. Hann mætti í Rallý próf um helgina tók þátt í meistaraflokki, fékk síðasta súper meistarastigið sitt og kláraði kröfur fyrir rally champion brons einnig. Hann er í dag annar í stigum í keppninni í rally champion flokki hjá Danska Border Collie klúbbnum. Blue fékk svo að vera módel hjá Boxer & Beer Pet Photography og eins og sjá má var niðurstaðan sérstaklega skemmtileg. Það er óneitanlega sterkur ættarsvipur með þeim mæðgum
Það hefur verið rólegt hérna á síðunni undanfarið en ýmislegt hefur verið að gerast hjá hundunum. Sem dæmi má nefna að Píla og Lúna kláruðu sínar röntgenmyndatökur, þær voru allar DNA testaðar og Píla kláraði augnskoðun. Allar niðurstöðurnar eru komnar inn á síðurnar þeirra fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða þær. Við höfum almennt bara verið að njóta lífsins undanfarið, synda, leika og þjálfa hestana en planið er að dusta rykið af hundunum í haust og klára að gera þær ready fyrir hina ýmsu hluti. Aðrir hundarnir "mínir" hafa ekki verið að slóra og er Fly And Away A Whole Lotta Fun að brillera í NoseWork og klárað Hlýðni Brons Hún og Fly And Away Arctic Blue Sky hafa svo mætt "til ömmu" í æfingar Rallý Hlýðni próf og verða vonandi tilbúnar að mæta þegar fyrstu prófin fara í gang hjá HRFÍ. DKRLCH Fly And Away Always Our Mitch er duglegur í Rallý Hlýðni með eiganda sínum í Danmörku og keppir núna í Meistaraflokki og er orðin Danskur Rallý Meistari Að lokum er gott að nefna að hvolpaplön eru í mótun og er planað að para Pílu og vonandi vera með hvolpa einhverntíman yfir næsta árið. Ég á mögulega einhver pláss á biðlista þ.a. áhugasamir mega vera í sambandi.
Fyrsta hlýðnipróf ársins 2021 var haldið í gær eftir ansi langa pásu. Vista og Píla mættu báðar til að dusta rykið af hlýðninni og meta stöðuna og viti menn, þær stóðust báðar með 1. einkunn. Píla hlaut 174 stig og 2. sætið í hlýðni I og Vista kláraði hlýðni II með stæl og kláraði OB-II titilinn. Núna þarf líklega að halda áfram og leggja í æfingarnar í hlýðni III.
Þá er fyrsta árið í lífi hvolpanna liðið en þeir urðu ársgamlir 6. apríl síðastliðinn. Þeir hafa allir verið að einbeita sér að því að vaxa og dafna og fullorðnast. Fyrsti titillinn er kominn í hús fyrir snillinginn hann Mitch og má hann því löglega kalla sig RBM Fly And Away Always Our Mitch í dag ! Er svo stolt af þessum flotta dreng sem minnir mig alltaf svo óneitanlega mikið á systur sína Pílu.
Það er vægt til orða tekið líf og fjör á heimilinu þessa dagana, hvolparnir eru ýmist á fleygiferð um húsið, pallinn eða garðinn eða sofa eins og hráviði og þá helst í stórri hrúgu! Hvolparnir eru orðnir ansi góðir í að gera þarfir sínar úti, sem hefur heldur betur létt á heimilinu hvað þrif varðar. Það lofar ansi góðu fyrir væntanleg heimi hvolpanna að það verði auðveldara starf fyrir nýja eigendur að gera hvolpana húshreina. Við erum aðeins farin að tikka inn í "nýjar upplifanir" bankann, töluverður gestagangur hefur verið hérna heima af fólki að heimsækja hvolpana, þeir fengu að fara í fyrsta alvöru bíltúrinn í þessari viku og prófa að upplifa nýjan stað með nýjum kurteysum og þægum hundum, börnum, hestum og kindum.
Í þessari viku er á planinu að gera hvolpapróf á hópnum, það er mikil tilhlökkun að sjá hvort þeir komi út úr því prófi líkt og ég er búin að lesa þá, en persónuleikar þeirra hafa mikið verið að skína í gegn síðustu daga. Eftir prófið verða lokaákvarðanir teknar um það hvaða hvolpur fer á hvaða heimili. Það er líf og fjör á bænum en loksins næ ég að setjast niður og skrifa aðeins um þessa yndislegu hvolpahrúgu sem veltur núna um stofugólfið hjá mér. Hvolparnir eru allir að vaxa og dafna og persónuleikar þeirra eru farnir að skína í gegn. Þeir eru farnir að borða allan mat og hafa fengið að smakka ýmislegt og það vantar ekkert upp á leikþörfina en það eru teknar fjölmargar leiktarnir hér á dag, með heimilismeðlimum og án. Það verður allavegana klárlega ekki hægt að kvarta yfir því að þeir hafi ekki fengið að kynnast börnum ! There is a lot of life in the house these days and it's first now that I manage to sit down and write a little bit about this lovely pile of puppies running around my living room. The puppies are growing and thriving and their individual personalities are starting to shine through. They have started eating all sorts of food and have gotten to taste a wide variety of things and they are full of play drive and have numerous play sessions here with and without the members of the family. No one can say that these puppies weren't socialized with children !
Rétt eftir hádegi þann 6. apríl byrjaði loksins fjörið. Vista hafði verið með samdrætti og fyrirvaraverki í 3 daga fram að goti. Fyrstur mætti í heiminn stór og pattaralegur rakki og fram undir morgun mættu í heiminn 7 tíkur í viðbót. Því miður misstum við tvær þeirra, önnur náði sér aldrei almennilega á strik en hin var holgóma og við misstum hana eftir 2 daga. Eftir eru 1 blue merle rakki, 2 blue merle tíkur og 3 svartar og hvítar tíkur. Ég hef reyndar ansi sterkan grun um það að stór meirihluti hvolpanna sé þrílitur en það á eftir að koma í ljós þegar hvolparnir stækka og liturinn þróast. Ég vil því með stolti kynna fyrstu Flyandaway hvolpana í þeirri röð sem þeir fæddust !
|
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |