Hvolpaplön - Nýtt 2023
Á plönunum er að para Pílu ef allt gengur upp 2023, við erum að skoða mögulega rakka en ekkert er orðið neglt niður en nokkrir áhugaverðir möguleikar eru í skoðun.
Áhugasamir geta haft samband í [email protected]
Áhugasamir geta haft samband í [email protected]
Hvolpar vor 2018
Þetta got er búið að vera á plönunum í mörg ár og hugmyndin af því varð til áður en Vista varð okkar. Loksins var tíminn kominn og væntanlegur faðir fundinn. Hvolparnir fæddust 6-7 apríl, 1 rakki og 5 tíkur.
Anglesey Sweep |
DKRLCH OB1 Asasara Go Go Vista |
Ættbók gotsins
Innræktunarstuðull (COI) fyrir gotið reiknað út frá 12 kynslóðum er 4%
Mögulegir litir eftir bestu vitneskju eru
Mögulegir litir eftir bestu vitneskju eru
- Svartir og hvítir
- Svartir þrílitir
- Blue merle og hvítir
- Blue merle þrílitir
Ég á von á því að þessir hvolpar verði skapsterkir og stabílir, gáfaðir, hraustir og vinnusamir og henti í alla þjálfun og vinnu sem fyrir þá verður lögð. Þess á milli verða þeir fullkomnir heimilishundar, slakir og rólegir með góðan "off" takka. Hvolparnir fara gjarnan á heimili með reynslu af tegundinni og til eiganda sem eru áhugasamir um vinnu og þjálfun. Foreldarnir eru frábærir heimilishundar og á ég von á því að hvollparnir verði það líka en þessir hundar eru ekki ræktaðir sérstakega m.t.t. sýninga að öðru leiti en að foreldarnir eru mjög tegundartýpískir í útliti og byggingu.
Hvolparnir afhendast :
Hvolpunum mun fylgja:
Hvolparnir afhendast :
- Eftir heilsufarsskoðun og fyrstu bólusetningu, ormahreinsaðir og örmerktir
- Skráðir í HRFÍ ættbók
- Byrjaðir á klikker þjálfun
- Langt komnir með að vera orðnir húshreinir
Hvolpunum mun fylgja:
- Hvolpanámskeið
- Hvolpamappa fyrir hvern hvolp
- Mjaðma-, olnboga- og axlarmyndartökur við 12 mánaða aldur
- Hvolpapakki með fóðri og leikföngum
- Aðhald og aðstoð fyrir hverja þá þjálfun sem eigandinn vill leggja fyrir sig
- Aðstoð og stuðningur æfilangt