Þá er komið að því að Vista er farin að lóða. Að þessu sinni er það ansi merkilegt lóðarí því núna verður hún pöruð og verður því vonandi vorið og sumarið fullt af hvolpafjöri á þessum bæ. Í þessum töluðum orðum erum við að klára lokavinnu með að staðfesta rakkann, hún kom mér aðeins á óvart því ég átti ekki von á því að hún myndi lóða fyrr en eftir svona tvo mánuði.
Ég er búin að bíða eftir þessu goti ansi lengi, eiginlega frá því að Vista fæddist þar sem framtíðar plön fóru á flug þegar við, fátæku námsmennirnir fórum í samstarf með reyndum og virtum border collie ræktanda í Danmörku á þann veg að við tækjum tíkina á svokallaðan fóðursamning og ræktandinn átti því fyrsta gotið undan henni. Vista á í dag 8 börn og 7 barnabörn dreifð um Skandinavíu og þessir hundar eru ótrúlega magnaðir. Kíkið á hlekkinn "Fyrri Hvolpar" til að fá upplýsingar um hvolpana hennar sem hún átti úti. En já, ég er búin að ganga með þann draum í góð 20 ár að rækta þessa tegund og það er loksins að gerast, loksins er fyrsta gotið mitt mögulega að verða að veruleika.
0 Comments
|
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |