Í lok mars var fyrsta rally hlýðni próf ársins haldið. Prófið var tvöfalt og dæmdi ég annað prófið en mætti með Vistu og Lúnu í hitt prófið. Lúna mætti í Rally 1, endaði með 91 stig og fyrsta sætið í sínum flokki. Vista mætti svo í fyrsta Rally 2 prófið sem haldið hefur verið og endaði með 97 stig og fyrsta sætið. Þær fengu því báðar einn "pinna" eftir þetta próf.
Glæsilegu hundabörnin úr fyrsta gotinu mínu áttu afmæli um síðastliðna helgi og urðu þau 6 ára gömul. Píla, Lotta, Blue, Mitch, Tess og Alba til hamingju með daginn !
0 Comments
|
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |