Það er vægt til orða tekið líf og fjör á heimilinu þessa dagana, hvolparnir eru ýmist á fleygiferð um húsið, pallinn eða garðinn eða sofa eins og hráviði og þá helst í stórri hrúgu! Hvolparnir eru orðnir ansi góðir í að gera þarfir sínar úti, sem hefur heldur betur létt á heimilinu hvað þrif varðar. Það lofar ansi góðu fyrir væntanleg heimi hvolpanna að það verði auðveldara starf fyrir nýja eigendur að gera hvolpana húshreina. Við erum aðeins farin að tikka inn í "nýjar upplifanir" bankann, töluverður gestagangur hefur verið hérna heima af fólki að heimsækja hvolpana, þeir fengu að fara í fyrsta alvöru bíltúrinn í þessari viku og prófa að upplifa nýjan stað með nýjum kurteysum og þægum hundum, börnum, hestum og kindum.
Í þessari viku er á planinu að gera hvolpapróf á hópnum, það er mikil tilhlökkun að sjá hvort þeir komi út úr því prófi líkt og ég er búin að lesa þá, en persónuleikar þeirra hafa mikið verið að skína í gegn síðustu daga. Eftir prófið verða lokaákvarðanir teknar um það hvaða hvolpur fer á hvaða heimili.
0 Comments
Það er líf og fjör á bænum en loksins næ ég að setjast niður og skrifa aðeins um þessa yndislegu hvolpahrúgu sem veltur núna um stofugólfið hjá mér. Hvolparnir eru allir að vaxa og dafna og persónuleikar þeirra eru farnir að skína í gegn. Þeir eru farnir að borða allan mat og hafa fengið að smakka ýmislegt og það vantar ekkert upp á leikþörfina en það eru teknar fjölmargar leiktarnir hér á dag, með heimilismeðlimum og án. Það verður allavegana klárlega ekki hægt að kvarta yfir því að þeir hafi ekki fengið að kynnast börnum ! There is a lot of life in the house these days and it's first now that I manage to sit down and write a little bit about this lovely pile of puppies running around my living room. The puppies are growing and thriving and their individual personalities are starting to shine through. They have started eating all sorts of food and have gotten to taste a wide variety of things and they are full of play drive and have numerous play sessions here with and without the members of the family. No one can say that these puppies weren't socialized with children !
|
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |