Það hefur verið rólegt hérna á síðunni undanfarið en ýmislegt hefur verið að gerast hjá hundunum. Sem dæmi má nefna að Píla og Lúna kláruðu sínar röntgenmyndatökur, þær voru allar DNA testaðar og Píla kláraði augnskoðun. Allar niðurstöðurnar eru komnar inn á síðurnar þeirra fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða þær. Við höfum almennt bara verið að njóta lífsins undanfarið, synda, leika og þjálfa hestana en planið er að dusta rykið af hundunum í haust og klára að gera þær ready fyrir hina ýmsu hluti. Aðrir hundarnir "mínir" hafa ekki verið að slóra og er Fly And Away A Whole Lotta Fun að brillera í NoseWork og klárað Hlýðni Brons Hún og Fly And Away Arctic Blue Sky hafa svo mætt "til ömmu" í æfingar Rallý Hlýðni próf og verða vonandi tilbúnar að mæta þegar fyrstu prófin fara í gang hjá HRFÍ. DKRLCH Fly And Away Always Our Mitch er duglegur í Rallý Hlýðni með eiganda sínum í Danmörku og keppir núna í Meistaraflokki og er orðin Danskur Rallý Meistari Að lokum er gott að nefna að hvolpaplön eru í mótun og er planað að para Pílu og vonandi vera með hvolpa einhverntíman yfir næsta árið. Ég á mögulega einhver pláss á biðlista þ.a. áhugasamir mega vera í sambandi.
0 Comments
|
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |