Það er vægt til orða tekið líf og fjör á heimilinu þessa dagana, hvolparnir eru ýmist á fleygiferð um húsið, pallinn eða garðinn eða sofa eins og hráviði og þá helst í stórri hrúgu! Hvolparnir eru orðnir ansi góðir í að gera þarfir sínar úti, sem hefur heldur betur létt á heimilinu hvað þrif varðar. Það lofar ansi góðu fyrir væntanleg heimi hvolpanna að það verði auðveldara starf fyrir nýja eigendur að gera hvolpana húshreina. Við erum aðeins farin að tikka inn í "nýjar upplifanir" bankann, töluverður gestagangur hefur verið hérna heima af fólki að heimsækja hvolpana, þeir fengu að fara í fyrsta alvöru bíltúrinn í þessari viku og prófa að upplifa nýjan stað með nýjum kurteysum og þægum hundum, börnum, hestum og kindum.
Í þessari viku er á planinu að gera hvolpapróf á hópnum, það er mikil tilhlökkun að sjá hvort þeir komi út úr því prófi líkt og ég er búin að lesa þá, en persónuleikar þeirra hafa mikið verið að skína í gegn síðustu daga. Eftir prófið verða lokaákvarðanir teknar um það hvaða hvolpur fer á hvaða heimili.
0 Comments
Leave a Reply. |
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |