Sögulegur og sérstaklega skemmtilegur dagur í dag hjá hundasporti á Íslandi. Fyrsta rally hlíðni prófið hjá HRFÍ var haldið í dag, tvöfalt próf, þar sem ég dæmdi fyrra prófið og mætti með alla mína hunda í seinna prófið. Blue og Lotta ásamt sínum viðhengjum mættu einnig í bæði próf og fóru heim með fínar einkunnir (Lotta með tvær gildar einkunnir og Blue með eina). Píla mætti fyrst í braut, gerði allt hrikalega hratt og ekki alltaf mjög nákvæm svo við fengum 87 stig og 9. sætið. Lúna var næst síðasti hundur í braut, gekk ansi fínt og fékk 97 stig og 5. sætið. Vista bætti smá rós í hnappagatið hjá sér, náði 100 stigum og 1. sætið og heitir því í dag RL-I OB-I OB-II DKRLCH Asasara Go Go Vista
0 Comments
Leave a Reply. |
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |