Ýmislegt og allskonar hefur verið á döfinni undanfarið hjá okkur. Ég fór með stelpurnar í æfingarpróf í Rallý hlýðni sem Voffaland hélt í byrjun desember. Þar mættum við í skemmtiflokk þar sem ég dæmdi hina tvo flokkana. Píla og Lúna náðu báðar 100 stigum en Píla var með betri tíma og fékk því 1. sætið og Lúna 2. sætið. Lotta var svo í 3 sæti með 99 stig. Vista var í 5 sæti með 90 stig. Heilsufars niðurstöður bárust fyrir Lottu fyrir nokkru síðan en hún fékk eftirfarandi einkunnir HD - A AA - Fri OCD - Free Blue og Lotta luku einnig smalaeðlisprófi í október og hafa því einnig fengið nafnbótina NHAT líkt og Vista og Píla. Mitch í Danmörku hefur einnig bætt á sig nokkrum rósum og heitir í dag DKRLCH DKRLSCH RLCHB Fly And Away Always Our Mitch. Hann mætti í Rallý próf um helgina tók þátt í meistaraflokki, fékk síðasta súper meistarastigið sitt og kláraði kröfur fyrir rally champion brons einnig. Hann er í dag annar í stigum í keppninni í rally champion flokki hjá Danska Border Collie klúbbnum. Blue fékk svo að vera módel hjá Boxer & Beer Pet Photography og eins og sjá má var niðurstaðan sérstaklega skemmtileg. Það er óneitanlega sterkur ættarsvipur með þeim mæðgum
0 Comments
Leave a Reply. |
DKRLCH RL-I OB-I OB-II Asasara Go Go Vista NHAT
Archives
April 2024
Categories |